Auglýsing

Könnun

Á að fara í ferðalag í sumar

Leikur dagsins

Hvað er að vera Íslendingur?

05. febrúar 2007 klukkan 20:54

Að efast stöðugt um að maður vilji búa á Íslandi.
Að vera viðbúinn öllu, jafnvel eldgosi í garðinum.
Að sætta sig aldrei við veðrið.
Að sætta sig alltaf við verðið.
Að versla í fríhöfn eftir lendingu.
Að vera stöðugt að “drífa sig”.
Að vilja frekar byggja nýtt en varðveita gamalt.
Að fara aldrei í lengri mótmælagöngur en inn á klósett.
Að hætta að hvetja landsliðið um leið og það fær á sig mark.
Að bíða aldrei óbölvandi í röð.
Að búa í “Íslendinganýlendu” erlendis en líta “nýbúagettó” hornauga.
Að eiga alltaf “það nýjasta”.
Að vantreysta menntuðu fólki.
Að líta niður á heimsfrægt fólk.
Að vorkenna fólki af öðru þjóðerni fyrir að vera af öðru þjóðerni.
Að sýna drukknu fólki tillitssemi.
Að vera frjálslyndur gagnvart frávikum mannlífsins.
Að upphefja einbúa og skringimenn.
Að telja vinargreiða ekki til spillingar.
Að dást að yfirmönnum með yfirgang.
Að fyrirgefa hátt settum karlmönnum allt nema leiðindi.
Að taka ekki mark á konum yfir fertugu.
Að trúa á íslenska lagið í Eurovision allt til loka talningar.
Að halda ræður í afmælum.
Að reyna að hnoða saman vísu.
Að ganga á sokkaleistum innandyra.
Að fara á inniskóm út á lífið.
Að svara persónulegum tölvupóstum í vinnutíma.
Að enda illt umtal með hrósi: “Eins og þetta er nú fín stelpa.”
Að kunna að forðast óvini í margmenni.
Að ræða við óvin í bróðerni sé ekki undan honum komist.
Að lækka í sjónvarpinu þegar gestir koma.
Að vera stoltur af því hversu bíllinn er mikið keyrður.
Að gorta sig af hraðakstri milli landshluta.
Að geta alltaf séð bílinn sinn úr stofuglugganum.
Að hlýða ekki skiltum sem á stendur “LOKAД.
Að bera virðingu fyrir góðum sögumönnum.
Að koma lífi sínu á prent.
Að skipta partýum í karlahorn og kvennahorn.
Að kynna sig í miðju samtali.
Að spjalla áfram frammi í anddyri eftir að formlegri kveðju er lokið.
Að gefa sig á tal við ókunnuga landa í útlöndum.
Að breyta um karakter um leið komið er út úr landhelgi.
Að vera ein stór fjölskylda.
Að hefja daginn á því að kveðja þá landa sem létust í gær.
Sóley Margeirsdóttir
4 athugasemdir

Mynd úr afmælinu hjá afa Guðjóni

26. desember 2006 klukkan 04:01

Það var svaka fjör í afmælinu hjá afa 16. desember.. 



Við frænkurnar með afa, Margrét, Heiðrún, Ég, Elva, Hugrún & afi og Inga


 

Sóley Margeirsdóttir
2 athugasemdir

Gleðilega Hátíð

26. desember 2006 klukkan 03:52

Gleðileg jól og farsælt komandi ár



Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar

Jóla-Kveðja Sóley

Sóley Margeirsdóttir
Engin athugasemd

Skamm skamm

24. október 2006 klukkan 02:20
Jæja það er allt of langt síðan ég skrifaði síðast... Það er ekki það að ég hafi ekki tíma ég bara nenni því ekki Óákveðinn en ég skal reyna að bæta einhvað úr því á næstunni..
Það hefur margt verið á dagskránni síðan síðast og nóg að segja frá en ég bara er ekki í stuði til þess núna en geri það kannski seinna.....
Helgin var mögnuð fór á Sálar-ball á laugardaginn, voða stemning. Smá ölvun en ekki mikil þar sem ég þurfti að skutla á sundmót í Hafnarfirði kl 7.20 en var nú samt ekki komin heim af djamminu fyrr en að verða 6 þannig að það var lítið um svefn í gær þannig að ég er smá þreytt núna og er búin að vera það í allan dag!!!

Það er nóg að gera í skólanum og fullt af verkefnum og svoleiðis en það er bara gaman Brosandi

Nóg í bili
Sóley Margeirsdóttir
1 athugasemd

Sumarið er tíminn

29. ágúst 2006 klukkan 14:38

Núnar er ágúst mánuður að verða búinn og september að hefjast...
Í dag er annar skóladagurinn og var sá fyrsti í gær. Í síðustu viku voru bara Kynningardagur, hreyfidagur og BUSAdagur, busadagurinn var geggjaður og var mikið gert hægt er að skoða myndband og myndir á www.vf.is .
Sundið hófst einnig hjá mér í gær og segja má að það hafi ekki verið nóg og mikið að börnum sem komu en vonandi bætast fleiri í hópinn síðar.

Upprifjun frá síðustu færslu úr lífinu mínu:
Vinna hjá pabba

Tyrkland-Marmaris

Vinna á SÖGU

Djamm

Vinnumannamót á Oddsstöðum

Margt fleira sem ég man ekki alveg en þetta er svona það helsta


Síðan er það bara LJÓSANÓTT næstu helgi og er von á svaka partýi heima Svalur

Verð að hætta núna tíminn er að klárast og verklegt næst....

Sóley Margeirsdóttir
1 athugasemd

Jæja þá

06. júlí 2006 klukkan 22:47
Er ekki komin tími til að láta heyra frá sér..
Já þá er Landsmótið búið og beðið er eftir næsta á Hellu 2008 en fyrst er það Holland 2007 Heimsmeistarmótið...

Já ég hitti nokkur úr skólanum á LM; Kristján, Sigurlaugu, Sigga, Beggu og Gunna. Það var gaman að sjá ykkur. LM var frábært þrátt fyrir að ég var að vinna og þurfti því alltaf að ver mæt áður en keppnin hófst þannig að ég svaf voða lítið og er enn að ná mér á erfitt með að vakna á morgnana en vona að það lagist er farin í háttinn snemma og vaka seint Skömmustulegur Já hægt er að skoða myndir hjá Elvu systir og líka hjá Köttunum ... þær myndir lýsa nætur lífinu Svalur

Já sumarið er búið að vera fljótt að líða og styttist óðum í Tyrkland 25. júlí síðan er það skólinn..

Ætla að láta þetta duga í bili
Sóley Margeirsdóttir
2 athugasemdir

Áfengi !!!!!

31. maí 2006 klukkan 01:24
 

Allt er best í hófi
mbl.is/Kristinn

Tækni & vísindi | AFP | 26.5.2006 | 13:30

Áfengi minnkar líkur á hjartasjúkdómum

Dagleg hófneysla áfengis virðist draga úr líkum á hjartasjúkdómum hjá körlum en minna þarf hjá konum svo áhrif drykkjunnar séu góð. Þetta kemur fram í skýrslu, sem birt var í breska læknatímaritinu í dag. Rannsóknin var gerð á 50.000 Dönum á aldrinum 50 til 65 ára hjá danskri miðstöð sem sérhæfir sig í áfengisrannsóknum.

Rannsóknin sýndi að karlmenn, sem drukku áfengi daglega, voru um 40% síður líklegir til að fá hjartasjúkdóma en þeir sem ekkert drukku eða drukku sjaldnar. Konur sem drekka áfengi fá einnig síður hjartasjúkdóma, en litlu máli virðist skipta hvort konurnar drekka daglega eða vikulega.

Drykkjuvenjur þeirra, sem tóku þátt í rannsókninni, voru mældar á sex ára tímabili. Þá voru þættir á borð við aldur, reykingar og matarvenjur teknir til hliðsjónar, 2,6% kvennanna og 5,1% karlanna fengu hjartasjúkdóma á meðan á rannsókninni stóð.

Judy O'Sullivan, talsmaður Bresku hjartastofnunarinnar, varar þó fólk við því að taka niðurstöðurnar of bókstaflega og segir að bindindisfólk ætti ekki að hefja drykkju til að minnka líkur á hjartsjúkdómum. Þá segir hún að þeir sem drekka verði að hafa það í huga að ókostir mikillar drykkju séu mun fleiri en kostirnir.

Sóley Margeirsdóttir
3 athugasemdir

Trallala

19. maí 2006 klukkan 03:23


Einn daginn var maður að röllta



Þá kom hann auga á liggandi konu



Og þá byrjaði hringekjan



Svo stökk hann út í djúpu laugina..



Og bauð henni út að borða



Þau fengu sér pulsu og kók



Og ferðuðust saman um heiminn



.. fóru í hvalaskoðun



Og á hestbak..



Hann fór með hana í nálægt sæluhús



Og hún sagðist vera á pillunni



Hún lagðist á rúmið



Og glennti í sundur á sér lappirnar



Og holdið fór að rísa á okkar manni.



.. og hann fór inn í göngin.



Inn og út.. Inn og út.



Hann fann strax að hún var ekki óspjölluð


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d574dccc63f266310025700a003ac7e6/Body/0.966?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann stakk upp á því að taka hana aftanfrá..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9d935ac6ae6512cd0025700a003ac76c/Body/0.118?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
En hún harðneitaði því!



Henni fannst hann ekki fara nógu hratt..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/cc8249a8c45c28010025700a003ac79f/Body/0.1AC8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og gerði grín af litla tólinu hans.


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/107640f37142b2160025700a003ac776/Body/2.3B1E?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Svo hann kveikti á sleggjunni..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/42f13687fe0a4f4b0025700a003ac797/Body/0.128?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og óð í öll göt sem hann sá.


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/1c911a37a7ef66d30025700a003ac78f/Body/0.112?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og þegar hún hafði séð alla liti regnbogans..



Öskraði hún STOP!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9cb5eec3a39d2a4e0025700a003ac746/Body/0.116?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Því hún hafði ekki sagt honum sannleikann!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/86a81103b2093a110025700a003ac79d/Body/0.B08?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hún var ekki á pillunni!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/267199dc0b647b030025700a003ac761/Body/0.122?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Hann missti stjórn á sjálfum sér


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/b15f49e2979dc5660025700a003ac7c3/Body/0.2462?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og missti stjórn á fleiru ....



Fékk nóg og gekk út!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/05c50df5fedef2450025700a003ac78c/Body/0.1ED6?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
9 Mánuðum seinna hringir hún..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/46e9922d542646810025700a003ac76b/Body/0.244?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Af sjúkrahúsinu..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/66c36ebb238781d60025700a003ac757/Body/0.10A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann var orðinn pabbi!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/c90b33a9dba843770025700a003ac7ad/Body/0.EC0?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann vildi ekki fjölskyldu..



Lífið hans hrundi!


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d0d13f817de9150e0025700a003ac80d/Body/0.1C8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og eftir það lá allt niður á við..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/18b9e74f3cac818c0025700a003ac7a9/Body/0.1810?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og hann vildi bara deyja..


The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/a4162ab837f751980025700a003ac7d7/Body/0.110?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og boðskapurinn með þessu er..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/aae89a983797ef530025700a003ac788/Body/0.11A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Ef þið viljið ekki gera stelpu ólétta..


 

NOTA SMOKKINN!

Sóley Margeirsdóttir
Engin athugasemd

Föstudagurinn 5. maí

05. maí 2006 klukkan 16:56
Já í dag er föstudagur enn ein helgina að ganga í garð Hlæjandi

Smá yfirlit yfir byrjun maí

1. maí
Firmakeppni Mána. Svaka fjör og má með sanni segja að mótið hafi verið í eigu okkar fjölskyldu..hehe
Margrét keppti í unglingaflokki & endaði í 2. sæti 
Elva Björk keppti í ungmennaflokkir & vann
Ég keppti í kvennaflokki & endaði í 3. sæti
Pabbi keppti í Heldrimannaflokki & vann
Elva Björk keppti í B-Flokki & endaði í 3.sæti
Síðan var parareið [ríða tveir og tveir saman og eru í búiningum]
Fiskverkakonur frá Nesfiski - Elva Björk & Sóley Björk unnu en ég & Margrét vorum smiðir frá Húsanes ekki er hægt að gefa upp sætið sem við lentum en það var örugglega 6. sæti

2. maí
Habbý & Pétur eignuðus prinsessuBrosandi
Ég var að læra fyrir próf.

3. maí
Próf í Líkams-&Heilsurækt

4. maí
Elva varð MAMMA 
Var að læra einhvað smá
Kíktum síðan á Habbý & prinsessuna, engin smá dúlla og þeim heilsas vel
Fór í Rope-Yoga og síðan var brunað austur á Sögu að skoða folaldið hennar Elvu

5. maí
Ætti að vera að læra en nenni því ekki, asnalegt próf á morgun í Forvarnagildi íþrótta, þrjár spurningar tvær 25% og ein 50% þannig að það verðu skrifað og skrifað á morgun

Það eru bara tvö próf eftir 6. maí & 10. maí þannig að það styttist óðum í sumarið Svalur

Læt þetta duga í bili en læt ekki líðan langt í næstu færslu
Sóley Margeirsdóttir
1 athugasemd

01:02:03 04.05.06

04. maí 2006 klukkan 05:46

Talnaröðin 01:02:03, 04.05.06
mun myndast í nótt

Sú merkilega talnaröð mun myndast í eina sekúndu í fyrramálið að klukka og dagsetning munu mynda saman tölurnar 1-6 í réttri röð, nánar tiltekið kl. 1:02 og þremur sekúndum betur á fjórða degi fimmta mánaðar 2006. Þannig myndast tímaröðin 01:02:03, 04.05.06 ef klukka og dagsetning eru lögð saman. Þetta er kannski ekki merkilegt að neinu leyti nema fagurfræðilegu og þeim sem gífurlegan áhuga hafa á tölum. Það sem þó má þykja merkilegt er að þeir, sem nú eru á lífi, munu aðeins upplifa þetta einu sinni um ævina, þar sem tímaröðin mun næst myndast 4. maí 2106.

.

Sóley Margeirsdóttir
1 athugasemd